Löggiltur ökukennari - Akureyri

Lærðu að aka
með öryggi
og sjálfstrausti

Persónuleg ökukennsla fyrir byrjendur og lengra komna. Ég tek þig í gegnum allt ferlið — frá fyrsta tímanum og fram að prófi.

Ég heiti Haukur Björnsson, fæddur og uppalinn á Akureyri. Fjölskyldumaður með tvær litlar stelpur. Í gegnum árin hef ég mikið verið á ferðinni og sennilegast eytt meiri tíma undir stýri á ökutæki heldur en meðal Íslendingur.

Ég útskrifast árið 2015 með B.Sc. í Jarðfræði við Háskóla Íslands. Sama ár tók ég meiraprófið og hóf störf sem ökuleiðsögumaður, sem ég starfaði í fullu starfi við til 2022. Árið 2022 útskrifast ég sem ökukennari og hef starfað við það síðan.

Haukur Björnsson Ökukennari

Hvernig hef ég ökunám?

Byrjar á því að tala við ökukennara sem leiðbeinir þér með framhaldið. Þú sækir um námsheimild inná island.is/okunam og skráir ökukennarann sem þú ert í sambandi við sem ökukennara. Ef þú svarar einhverri spurningunni játandi, t.d. að þú sért með gleraugu, þá þarftu að hafa samband við lækni og fá læknisvottorð og skila því til sýslumanns. Þú þarft líka að taka passamynd og skila inn til sýslumanns. Þegar allt þetta er klárt, þá er hægt að hefja ökunám. Neðst á síðunni er hægt að hafa samband við mig, í gegnum Facebook eða hringja í síma 845-0434.

Þegar þú hefur sótt um ökuskirteini þá hefur þú aftur samband við ökukennarann þinn og þið finnið tíma í sameiningu.

Ökutímafjöldinn er að lágmarki 10 ökutímar og ökuskóli 1 til að fá æfingaakstur. 12 ökutímar, ökuskóli 1, 2 og 3 til að taka skriflega bílprófið. 15 ökutímar og skriflegt bílpróf til þess að mega taka verklega prófið.

Hafið það í huga að það er mismunandi eftir ökunemum hversu marga tíma þeir þurfa. Tímafjöldinn sem er talað um er lágmarkstímafjöldi sem allir þurfa að taka en margir þurfa fleiri ökutíma. Algengt er að það þurfi 17 - 25 ökutíma til þess að fá bílpróf.

Það er mjög mikilvægt að keyra reglulega í æfingaakstri en það hjálpar við að halda tímafjöldanum í lágmarki fyrir verklega bílprófið. Að keyra reglulega er að keyra tvisvar til þrisvar í viku. Allur akstur hjálpar - þó það sé einungis í búðina og heim.

Verðskrá

Ökutími 14.500 kr
Akstursmat á Ökukennslubíl 14.500 kr
Akstursmat á bíl nema 10.500 kr

Verð eru birt með fyrirvara um breytingar.

Algengar spurningar

Hvenær má ég hefja ökunám? +

Á 16 ára afmælinu.

Þarf ég að vera orðinn 16 ára til að sækja um námsheimild? +

Já, þess þarf.

Hvað þarf ég að gera til að hefja ökunám? +

Byrjar á því að tala við ökukennara sem leiðbeinir þér með framhaldið. Þú sækir um námsheimild inná island.is/okunam og skráir ökukennarann sem þú ert í sambandi við sem ökukennara. Ef þú svarar einhverri spurningunni játandi, t.d. að þú sért með gleraugu, þá þarftu að hafa samband við lækni og fá læknisvottorð og skila því til sýslumanns. Þú þarft líka að taka passamynd og skila inn til sýslumanns. Þegar allt þetta er klárt, þá er hægt að hefja ökunám.

Get ég gert eitthvað til þess að flýta umsóknarferlinu? +

Já, þú getur verið búinn að fá passamynd (þarf að vera ný/nýleg) og ef þú veist að þú þarft læknisvottorð þá getur þú verið búinn að panta tíma nálægt 16 ára afmæli.

Get ég tekið bílpróf á sjálfskiptan bíl? +

Já, það er hægt að taka bílprófið á sjálfskiptan bíl. Sá sem tekur bílprófið á sjálfskiptan bíl fær tákntöluna 78 í ökuskirteinið sitt en það takmarkar ökuréttindin við sjálfskipta bíla.

Get ég bætt við beinskiptum ökuréttindum ef ég tók bílprófið á sjálfskiptan bíl? +

Já það er hægt. Best að hafa samband við ökukennara með framhaldið.

Ef ég tók bílprófið á sjálfskiptan bíl og vil bæta við beinskiptum, þarf ég að taka allt ferlið aftur? +

Nei, þess þarf ekki. Þú þarft einungis að taka ökutíma til að læra á bílinn/beinskiptinguna og verklega bílprófið aftur.

Á hvernig bíla kennir þú? +

Ég kenni á beinskiptan Renault Kadjar og sjálfskiptan Kia Sportage.

Hvenær má ég taka bílprófið? +

Bóklega bílprófið má taka 2 mánuðum fyrir 17 ára afmælisdag. Verklega bílprófið má taka 2 vikum fyrir 17 ára afmælisdag.

Hvað get ég gert ráð fyrir því að ökuprófið kosti og hverjir eru kostnaðarliðirnir? +
Umsókn um ökuskirteini4.300 kr
Passamynd5.000 kr
16 ökutímar232.000 kr
Ökuskóli 110.900 kr
Ökuskóli 210.900 kr
Ökuskóli 355.500 kr
Skriflegt próf7.583 kr
Verklegt próf19.619 kr
Samtals að lágmarki346.802 kr

Verð á ökuskólum getur verið mismunandi eftir því hvaða ökuskóli er valinn. Lágmarksfjöldi ökutíma er 15 en 16. ökutíminn er próftíminn. Þetta er lágmarkskostnaður miðað við lágmarksfjölda ökutíma hjá ökukennara og að ná prófum í fyrstu tilraun. Því verður að hafa í huga að það er algengt að þurfa að reyna við skriflega bílprófið oftar en einu sinni og að ekki komast allir upp með að taka bara lágmarksfjölda ökutíma. Því getur raunkostnaður því verið hærri.

*ATH – Verð eru sett fram miðað við verðskrá ökuskóla og Frumherja í apríl 2026 og geta hafa breyst.

Hvar fæ ég passamynd? +

Passamynd er hægt að fá hjá ljósmyndara eða fara í básinn inná Glerártorgi. Básinn er staðsettur við hliðina á apótekinu, þar sem farið er upp á 2. hæð.

Hvenær get ég fengið æfingaakstur? +

Til að fá æfingaakstur þarf að klára að lágmarki 10 ökutíma og Ökuskóla 1. Ökukennarinn þinn staðfestir æfingaakstur inná island.is.

Hvar fæ ég æfingaaksturs merkið? +

Hjá ökuskólanum sem þú tókst Ökuskóla 1 hjá.

Ég týndi æfingaakstursmerkinu mínu. Hvað get ég gert? +

Best að hafa samband við ökuskólann sem þú tókst Ökuskóla 1 hjá og kaupa nýtt skilti.

Hvernig skrái ég nýjan leiðbeinanda í æfingaakstur? +

Þeir sem vilja vera leiðbeinendur í æfingaakstri þurfa að skrá sig sjálfir á ísland.is/aefingaakstur.

Hvenær get ég fengið æfingaakstur? +

Til að fá æfingaakstur þarf að klára að lágmarki 10 ökutíma og Ökuskóla 1. Ökukennarinn þinn staðfestir æfingaakstur inná island.is.

Hvað þarf ég að gera til að taka skriflega prófið? +

Þú þarft að klára að lágmarki 12 ökutíma ásamt Ökuskóla 1, 2 og 3. Best er að skrá sig í bóklega prófið í samráði við ökukennara.

Hvað þarf ég að gera til að taka verklega prófið? +

Þú þarft að klára að lágmarki 15 ökutíma ásamt Ökuskóla 1, 2 og 3. Einnig þarftu að hafa staðist skriflega bílprófið. Ökukennarinn skráir þig í verklega bílprófið.

Þarf ég að klára Ökuskóla 2 áður en ég tek Ökuskóla 3? +

Nei, þess þarf ekki.

Hvar get ég tekið Ökuskóla 1 og 2? +

Það eru nokkrir ökuskólar sem bjóða upp á Ökuskóla 1 og 2. Þar má nefna: Ekill, 17.is, Netökuskólinn, Ökuskólinn í Mjódd og keyrslan.is.

Hvar get ég tekið Ökuskóla 3? +

Á Akureyri er hægt að taka hann hjá Ökugerði og á höfuðborgarsvæðinu hjá Ökuskóla 3.

Þarf ég að taka Ökuskóla 3 áður en ég fæ bílpróf? +

Já.

Get ég tekið Ökuskóla 3 allt árið á Akureyri? +

Já, Ökugerði er opið allt árið. Á veturna er opið miðað við eftirspurn og aðstæður. Þá er skráð á biðlista og haldið námskeið þegar aðstæður bjóða upp á að hægt sé að halda námskeið.

Get ég dreyft greiðslum? +

Ég get boðið upp á að dreifa greiðslum sé þess þörf og best að gera það í samráði við mig. Sé greiðslum skipt upp þá bætist við seðilgjald á hvern reikning.

Hvernig borga ég fyrir ökunámið? +

Ég sendi reikninga í heimabanka.

Ef verðskráin þín hækkar í miðju námi, hækkar þá tímagjaldið mitt? +

Stutta svarið er nei en fer eftir aðstæðum. Þeir nemar sem hefja nám á ákveðnu gjaldi klára námið á því gjaldi hjá mér ef þeir klára það á eðlilegum tíma. Ef námið er komið á þriðja almanaaksárið þá hækkar tímagjaldið miðað við verðskrá á þriðja ári.

Dæmi: Nemi hefur nám í apríl 2026 og fær æfingaakstur í júní 2026. Gjaldskrá hækkar í janúar 2027. Nemi mætir aftur í ökutíma í ágúst 2027 og klárar prófið í september 2027. Í þessu tilfelli eru ökutímarnir 2027 á sama tímagjaldi og 2026.

Annað dæmi: Nemi hefur nám í apríl 2026 og fær æfingaakstur í júní 2026. Gjaldskrá hækkar í janúar 2027 og aftur í janúar 2028. Nemi hefur aftur ökutíma í febrúar 2028 og fær bílpróf í apríl 2028. Í þessu tilfelli eru ökutímarnir 2028 á nýja tímagjaldinu 2028.

Foreldrar mínir ætla að borga fyrir ökunámið, hvernig er best að haga sér í því? +

Ég get bæði sent reikning á þann sem ætlar að borga fyrir ökunámið eða á ökunema. Best að ræða við mig í byrjun náms.

Hvað gildir bráðabirgðarskírteini lengi? +

3 ár.

Hvað þarf ég að gera til að fá fullnaðarökuskírteini? +

Til að fá fullnaðarökuskírteini þarf að taka akstursmat. Til þess að taka akstursmat þarftu að hafa haft ökuréttindin í 12 mánuði að lágmarki og að vera punktalaus síðustu 12 mánuði. Ef þú hefur haft ökuréttindin í 30 mánuði og færð punkt, þá þarftu að sækja um annað bráðabirgðarskírteini og fara í akstursmat þegar þú hefur verið punktalaus í 12 mánuði. Þess vegna er best að taka akstursmat sem fyrst.

Hægt er að hafa samband við mig hér á síðunni, á Facebook eða í gegnum síma til þess að skrá þig í akstursmat.

Hvað felst í B-bílprófinu? +

Ökuréttindin sem þú færð með B-bílprófinu er akstur á bíl með allt að 8 farþegum (að ökumanni undanskyldum), á bíl með allt að 3500kg heildarþyngd og kerru sem er 750kg að heildarþyngd. Kerran má vera þyngri ef heildarþyngd bíls og kerru er undir 3500kg svo lengi sem bíllinn má draga kerruna en ef heildarþyngdin fer yfir 3500kg þá má kerran mest vera 750kg.

Er systkynaafsláttur? +

Ef systkyni eða tvíburar hefja ökunám á sama tíma þá er 10% systkynaafsláttur af ökutímum.

Kennir þú bara á Akureyri eða kennir þú í sveitinni í kring? +

Ég kenni aðallega á Akureyri en get tekið að mér nema úr sveitunum í kring. Kennsla mun að mestu fara fram á Akureyri og því mikilvægt að nemi geti hafið fyrstu tímana inn á Akureyri. Ég get tekið að mér að kenna lengra frá Akureyri gegn aukagjaldi eða ef nemar eru fleiri en einn en best að hafa samband.

Byrjum
ferðalagið

Langar þig að hefja ökukennslu eða hefur þú einhverjar spurningar? Sendu mér skilaboð og ég svara þér sem fyrst

Akureyri